Ágætur sumarhiti í kortunum

Íbúar á Vestur- og Norðurlandi geta tekið fram stuttbuxurnar og sandalana því veðrið á eftir að leika við þá um helgina ef spá Veðurstofunnar gengur eftir, en hún gerir ráð yfir 20 stiga hita á þessum slóðum og léttum himni. 

Spáð er 8 til 20 stiga hita á land­inu í dag. Hlýj­ast verður sem fyrr segir á Vestur og Norður­landi. Á morg­un er spáð 14 til 21 stigs hita. Á höfuðborg­ar­svæðinu má bú­ast við því að létt­skýjað verði í dag en að þykkni held­ur upp með kvöld­inu. Hiti verður 8 til 15 stig.

Von er á nokkr­um hlý­ind­um vest­an­lands og norðan í dag og næstu daga. Nokkuð sól­ríkt verður og má reikna með að hit­inn á þess­um slóðum verði 19 til 21 stig. Ann­ars staðar á land­inu er bú­ist við 8 til 13 stiga hita á morg­un. Bú­ast má við vætu sunn­an- og aust­an­lands.

Veður­stof­an var­ar við því að vind­hraði í hviðum geti farið í 25 til 30 m/​s und­ir Eyja­fjöll­um, í Mýr­dal og Öræf­um fram á kvöld. Get­ur akst­ur með aft­anívagna því verið var­huga­verður. Það dreg­ur smám sam­an úr vindi í kvöld.