Aftur í rútínu og það strax.

Nú er landinn að skríða úr sumarfríinu og margir komnir aftur til starfa eftir jah.. ekkert sérstaklega veðurgott frí. Margur hefur spilað minna golf en óskir voru um og gaskúturinn er ennþá hálffullur undir grillinu. - Aldrei hafa verið seldar jafn margar sólarlandaferðir og þetta árið og aðsókn í ljósabekkina minnir einna helst á lífstíl níunda áratugarins. 

Verum ekkert að dvelja í biturleikanum og horfum björtum augum inn í haustið sem blasir við. Spriklum af okkur sumarspikið og verum besta útgáfan af okkur sjálfum ... það er eina vitið. 

Til þess að koma sér í rútínu er mjög gott að byrja í dag. 

Við viljum auka vatnsdrykkjuna til muna, ganga hratt og örugglega framhjá nammilandi og taka stefnuna beinustu leið í grænmetið. Mér finnst mjög gott að segja við sjálfa mig í innkaupaferð \"ef það er ekki keypt, þá er það ekki borðað\". Matarræðið er lykilatriði að bættri líðan.

\"\"

Við íslendingar erum einnig svolítið öfgafull og má með sanni segja að líkamsræktastöðvar séu eins og lúpínan, þ.e.a.s allstaðar! Svo að allar afsakanir varðandi að \"nenna ekki\" eru ekki í boði. Hreyfing er mjög margþætt og einn vænn hálftíma göngutúr eykur blóðflæði og brennsluna til muna. Á hálftíma göngu brennir einstaklingur allt að 150 kaloríum og á hálftíma bringusundi hátt í 300! Hreyfing þarf ekki endileg að vera flókin, það þarf ekki að halda í hönd einkaþjálfara eða fá tækjaréttindi í þjálfunarstöð til þess að stunda líkamsþjálfun. Það getur einfaldlega bara verið einfalt. 

Vert er hins vegar að benda á að hreyfingarúrræðin á Íslandi eru gríðarlega mörg. Hægt er að sækja sér margskonar námskeið og þjálfun sem er einkar skemmtileg og aldur er engin fyrirstaða. Til að mynda þekki ég eina kappmikla konu sem byrjaði að æfa tennis um daginn og skemmti sér konunglega... að vísu þar til hún missteig sig allsvakalega og reif liðband í ökla. Förum bara hægt af stað.

\"\"

Mergur málsins - finnum okkar eigið jafnvægi með bættum líkama og bættri sál og svífum inn í haustið.

 

\"Ég fer í ljós þrisvar í viku, og mæti reglulega í líkamsrækt\" 

 

**Snædís**