Enn einn ferðaspillirinn veður nú yfir landið með tilheyrandi hviðum sem á stundum geta farið yfir 40 metra á sekúndu, svo sem á utanverðu Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Lægðin æðir yfir á landið úr suðaustri á næstu sex klukkustundum og leikur íbúa um allt vestanvert landið, frá Eyjafjöllum til Vestfjarða, einna verst. Víða á þessu svæði er mjög hált á vegum, enda lemur regnið á snjóþekjunni. Þá er einnig skafrenningur í kortunum á stöku stað, svo sem á Sandskeiði og á Hellisheiði. Þæfingsvefærð er á heiðum vestur á land og firði og loks er Holtuvörðuheiðin tæp til ferðalaga.
Aftakaveður víða um land
Fleiri fréttir
Nýjast