Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri Sjónvarps, hefur staðfest að atriðið í Stundinni okkar sem Ríkisútvarpið sá ástæðu til að biðjast afsökunar á var atriðið í áramótaskaupi Stundarinnar þar sem grínkastljósinu var beint að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra.
Þetta upplýsir Stundin í dag með skriflegu svari frá Rúv vegna fyrirspurnar Stundarinnar.
Kristinn Hrafnsson fyrrum fréttamaður Rúv hefur kallað ákvörðun Ríkisútvarpsins pólitíska ritskoðun á Stundinni okkar.
Ýmis óánægja fultrúa ríkisstjórnarinnar með fréttastefnu og efnistök Rúv hefur verið rifjað upp í þessu samhengi en ákvörðun Rúv þykir í sumum kreðsum veikja sjálfstæði stofnunarinnar og listrænt frelsi. Má benda á að tveir þingmenn úr stjórnarmeirihlutanum kröfðust afsökunarbeiðni í grein í gær. Þeir fögnuðu báðir þegar afsökunarbeiðnin lá fyrir. Þingmennirnir eru Karl Garðarsson, Framsóknarflokki og Elín Hirst, Sjálfstæðisflokki. Þau eru bæði fyrrverandi fréttastjórar stóru stöðvanna tveggja og þekkja vel þann pólitíska þrýsting sem fréttastofur verða sífellt fyrir en sitja nú hinum megin borðsins.
Í atriði Stundarinnar var leikið með Stjörnustríð. Bjarni og Sigmundur Davíð hlæja í atriðinu illkvittnislega, þeysast um á geimskipinu „Einkavæðarinn“ og tortíma svo bæði Landspítalanum og Ríkisútvarpinu.
Stundin bendir á að í Stundarskaupinu, sem sérstaklega er ætlað börnum, hafi einnig verið gert grín að fleiri stjórnmálamönnum, meðal annars Árna Páli Árnasyni formanni Samfylkingarinnar og pírötunum Birgittu Jónsdóttur og Helga Hrafni Gunnarssyni. Þá sé hæðst að forseta Íslands og Eyþóri Arnalds, athafnamanni sem nýverið vann umdeilda skýrslu um rekstur Ríkisútvarpsins.
„Ekki hefur verið beðist afsökunar á þessum bröndurum, heldur einungis þeim er beindist að Sigmundi og Bjarna,“ segir í frétt Stundarinnar.