Í tilraunum til ríkisstjórnarmyndana er rætt um hve miklar málamiðlanir þurfi til að allir verði sáttir og stjórn haldi. Þau sjónarmið eru uppi að betra sé að hafa þrjá flokka, þ.e. Sjálfstæðisflokk, VG og Framsókn í ríkisstjórn – fimm flokka stjórn sem áður var reynd til vinstri hefði kallað á mun meiri afslátt hvers flokks af stefnumálum sínum . Á þetta er bent þegar gagnrýnt er að flokkarnir á sitt hvorum „endajaxlinum“ í íslenskri pólitík séu að ræða saman með framsókn sín á milli.
Flokksfólk til vinstri bendir réttilega á að flokkarnir fimm og þá ef til vill með Viðreisn hefðu átt miklu meira sameiginlegt en flokkar Bjarna og Katrínar. Fjöldi flokkanna hefði ekki verið vandamál.
Sumt flokksfólk í VG lítur ekki svo á að betra sé að vera í færri flokka stjórn eins og stefnir í. Í það minnsta eru tveir þingmenn þeirra ósammála þessari vegferð til hægri og nú hefur áhrifamikil kona, Drífa Snædal sagt sig úr VG. Drífa hefur verið ötul í stéttarbaráttu og innan verkalýðshreyfingarinnar og verið í flokknum í 18 ár.
Svo er bara að sjá hvort VG þurfi að fórna mikilvægum málefnum sínum auk mikilvægra liðsmanna til að fá forsætisráðuneytið.