Afskriftir með leynd

Bankamál heimsins eru enn í ólestri þótt tíu ár séu nú liðin frá því að Bandaríkin og mörg Evrópulönd fengu hrollvekjandi áminningu um alvarlegar brotalamir í bankarekstri.

Uppspretta vandans 2008 var hömluleysi sem fékk menn til að vanrækja og jafnvel rífa niður þær varnir sem reistar höfðu verið til hagsbóta fyrir almenning í heimskreppunni 1929-1939. Að vísu tókst með naumindum að girða fyrir nýja heimskreppu 2008 með þeim ráðum sem fundin voru upp í kreppunni miklu. Eigi að síður leiddu bankahremmingarnar 2008 af sér djúpa efnahagslægð sem öllum þjóðum öðrum en Grikkjum hefur nú tekizt að rífa sig upp úr við illan leik. Tjónið var mikið. Milljónir manna misstu vinnuna, heimili sín og sparifé. Bankastjórnendur mökuðu flestir krókinn. Margir reyndir bankamenn eiga von á öðrum skelli innan tíðar. 

Þótt betur færi að endingu en á horfðist í upphafi gerðu stjórnvöld víðast hvar eina reginskyssu. Þau reistu skjaldborg um banka án þess að setja bankastjórnendum stólinn fyrir dyrnar, skipta þeim út, fangelsa þá og sekta sem brutu lög eins og gert var í Japan í fjármálakreppunni þar 1992-1997. 

Tölurnar eru svolítið á reiki eftir því hvernig brot bankastjórnenda eru skilgreind. Financial Timesgreindi nýlega frá því að 47 bankastjórnendur hafi fengið fangelsisdóma fyrir brot tengd fjármálakreppunni, þar af 25 á Íslandi, 11 á Spáni og sjö á Írlandi. Engum sögum fer af sektum, eignaupptöku eða eftirlaunasviptingu líkt og gert var í Japan. Margir bankastjórnendur hafa því væntanlega horfið vonglaðir til misvel fenginna auðæva sinna að lokinni afplánun.


https://www.frettabladid.is/skodun/afskriftir-me-leynd