Íslandspóstur fékk ekki samþykki Samkeppniseftirlitsins áður en dótturfyrirtæki þess, ePóstur, var afskráð og látið renna saman við móðurfélagið. Í sátt sem Íslandspóstur gerði við Samkeppniseftirlitið í febrúar 2017 segir að ekki megi sameina dótturfélög móðurfélaginu nema samþykki eftirlitsins liggi fyrir. Fréttablaðið greinir frá.
Í umfjöllun Fréttablaðsins kemur fram að ePóstur hafi fengið 300 milljón króna vaxtalaus lán frá Íslandspósti og að sáttin við Samkeppniseftirlitið segi til um að reikna skuli vexti á lánin, sem Íslandspóstur hyggst ekki gera. Væru lánin látin bera markaðsvexti mætti reikna með að tap Íslandspósts af ePósti næmi hátt í hálfum milljarð króna.
Samruni félaganna var ákveðinn um sumar árið 2018 en eftirlitsaðilum sáttarinnar var ekki tilkynnt um það fyrr en fjórum mánuðum síðar og voru félögin sameinuð áður en afstaða eftirlitsaðila lá fyrir.
Samkeppniseftirlitið segir í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins að ekki liggi fyrir afstaða eftirlitsins um hvort aðgerðin sé brot gegn sáttinni og því liggi ekki fyrir hvort gripið verði til aðgerða gagnvart Íslandspósti.
Segir Íslandspóst fela tap og kallar eftir úttekt á rekstri
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, hafði í samtali við DV.is í byrjun desember gagnrýnt harðlega hvernig Íslandspóstur stóð að samrunanum. Það að Íslandspóstur hafi hafnað því að hafa brotið sátt sína við Samkeppniseftirlitið vegna meðferðar á málum ePósts kallaði hann aumt yfirklór.
Í fréttatilkynningu frá Ólafi vegna fréttar Fréttablaðsins í dag segir hann að í augum Íslandspósts sé sáttin við Samkeppniseftirlitið greinilega lítils virði. Með því að koma sér hjá því að reikna vexti á lán ePósts hafi Íslandspóstur falið hið raunverulega tap á fyrirtækinu, sem sé nálægt hálfum milljarði króna.
„Með því að sameina félögin býr Íslandspóstur sér svo til möguleika á að skrá kostnaðinn vegna ePósts á alþjónustuna og krefjast þess að hann verði bættur úr sameiginlegum sjóðum eins og annar taprekstur fyrirtækisins. Þetta mál sýnir enn og aftur fram á þörfina á að gerð verði óháð úttekt á rekstri Íslandspósts og öllum þeim röngu ákvörðunum sem þar hafa verið teknar, ekki síst um samkeppnisrekstur eins og ePóst“, segir Ólafur einnig í fréttatilkynningunni.