Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) vill ná tali af Jared Kushner. Hann er tengdasonur Donald J Trump forseta Bandaríkjanna.
Jared Kushner og fjölskylda hans eiga ríkra hagsmuna að gæta í Bandaríkjunum enda eru umsvif Kushner mikil á fjármálamörkuðum vestra og fasteignafélög í eigu fjölskyldu Kushner ein þau stærstu á austurstönd Bandaríkjanna.
Jared Kushner á ættir að rekja til Hvíta-Rússlands og er hann sagður eiga tíð samtöl við embættismenn frá Rússlandi - einkum um viðskiptaþvinganir þær sem Bandaríkin beita Rússland - sökum innlimunar Krímskagans árið 2014.
Jared Kushner er ekki sakaður um neitt enn sem komið er en FBI telur ástæðu til að ræða við hann um tengsl hans við rússneska embættismenn.
Og einkum vill FBI heyra um það hvort Jared Kusher hafi aðstoðað Rússa og stjórn rússnesks ríkisbankans við meint afskipti þeirra af forsetaskosningunum í Bandaríkjunum.
rtá