Afskaplega óskynsamlegt að fara út úr ees

„Þeir sem vilja fara í ESB hafa sagt það að við tökum 90 pró­sent af gerð­unum og þess vegna ættum við að fara inn. Nú koma hinir sem vilja fara út úr EES og segja að við tökum upp 90 pró­sent af gerð­un­um, þetta er algjör­lega óásætt­an­legt, við þurfum að fara út úr EES. Þetta er nátt­úru­lega ekki rétt. Ef menn kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu, sem ég held að væri afskap­lega óskyn­sam­legt, að við vildum fara út úr EES, þá skulum við und­ir­byggja það mjög vel,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Honum þykir það kaldhæðnislegt að öfga­fylk­ingar úr báðum áttum í Evr­ópu­um­ræð­u virð­ast nota sömu rökin fyrir afstöðu sinni. Kjarninn greinir frá.

Guð­laugur Þór er gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í frétta- og umræðu­þætt­inum 21 á Hring­braut í kvöld. Í ítarlegu viðtali ræðir hann meðal ann­ars EES samninginn, norð­ur­slóða­mál, þriðja orku­pakk­ann og Brex­it.

Brot úr viðtalinu má sjá hér:

Guð­laugur Þór segir það gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir Ísland að hafa aðgang að þeim stóra mark­aði sem innri mark­aður Evr­ópu­sam­bands­ins sé. Þá geti litlu fyr­ir­tækin á litla Íslandi keppt á jafnréttis­grunni við fyr­ir­tækin á meg­in­landinu. „Þau tæki­færi eru nokkuð sem við verðum þá að vera viss um að fá með öðrum hætti, ef við ætlum að fara út úr EES. En ég tel mjög mik­il­vægt að taka þessa umræð­u.“

Guðlaugur Þór skip­aði starfs­hóp til að fara yfir aðild Íslands að EES í ágúst síð­ast­liðn­um. Hópurinn, sem Björn Bjarna­son leið­ir, hefur tólf mán­uði til að skila ráðu­neyt­inu fullbúinni skýrslu.

Oft verið að ræða allt aðra hluti en þriðja orkupakkann

„Þegar það kemur gagn­rýni á eitt­hvað eins og þriðja orku­pakk­ann þá tek ég það mjög alvar­lega. Við sögðum að við ætl­uðum að skoða þetta jafn­vel og mögu­legt er. Það er það sem við erum að gera. Hins vegar liggur það alveg fyrir að það er alveg ljóst að menn eru oft að tala um allt aðra hluti heldur en þriðja orku­pakk­ann þegar menn eru að ræða þessa hlut­i[...]Þetta er eitt­hvað sem við erum að fá frá Nor­egi, enda eru norskir útsend­arar sem eru bara hér eins og gráir kettir frá norska Mið­flokknum sem að hafa það á stefnu­skrá sinni að ganga út úr EES.“

Nánar er rætt við Guðlaug Þór í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.