Áfrekskona safnar fyrir frænku sína

Afreksíþróttakona og Olympíufarinn Ásdís Hjálmsdóttir hefur hafið fjársöfnun til styrktar susturdóttur sinni sem þjáist af svonefndum Crohn´s-sjúkdómi en baráttan fyrir heilsu hennar er að sliga fjárhag fjölskyldu stúlkunnar.


Systir Ásdísar býr á Flórída í Bandaríkjunum með manni sínum og sjö ára dótturinni Ísabellu, en um árabil hefur engin greining fundist á viðvarandi og erfiðum liðverkjum stúlkunnar, þar til nú nýlega að hún greindist með fyrrgreindan sjúkdóm sem er bólgusjúkdómur í þörmum. Að sögn Ásdísar hefur frænka hennar þjáðst mjög mikið af liðverkjunum um langa hríð, en verkirnir séu óútskýranlega miklir fyrir lítinn líkamann. Foreldar hennar hafi gert allt til að lina þjáningar hennar - og nú þegar greiningin liggi fyrir, sé komið að skuldadögum sem engin venjuleg fjölskylda geti ráðið við.


Ásdís hefur sett á fót söfnunarsíðu á slóðinni www.life.indiegogo.com til styrktar Ísabellu færnku sinni þar sem fólk getur lagt fram frjáls framlög.


Sjálf er Ásdís landsfrægur spjótkastari sem hefur unnið eftirminnileg afrek á íþróttavellinum á undanförnum árum og skarað þar fram úr öðrum kynsystrum sínum í greininni.