Þátturinn Atvinnulífið verður á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en að þessu sinni verður fyrirtækið Alp hf. heimsótt en það er einn stærsti aðili á sviði bílaleigu á Íslandi og umboðsaðili AVIS og Budget. Mikil samkeppni ríkir á markaðnum og að sögn forstjórans, Hjálmars Péturssonar, eru 170 skráðar bílaleigur á Íslandi um þessar mundir. Hann er hins vegar á því að verðið ráðist og eigi að ráðast af framboði og eftirspurn en Alp hf. verður með bílaflota uppá hartnær 3.500 bíla á háannatíma á sumri komanda. Fyrirtækið tók á dögunum í notkun nýja þjónustumiðstöð í Vatnagörðum andspænis höfuðstöðvum fyrirtækisins sem eru í Holtagörðum. Stærstu hluti afhendinga fer fram í Leifsstöð enda eru viðskiptavinir fyrirtækisins langflestir útlendingar sem leigja sér bíla við komuna til landsins. Auk viðtals við Hjálmar er einnig rætt við félaga hans Vilhjálms Sigurðsson en þeir hafa stundað viðskipti saman í um 2 áratugi. Þá útskýrir Íris Ósk Valþórsdóttir, stöðvarstjóri Alp hf. með hvaða hætti bílar eru afhentir og þjónustaðir. Þáttastjórnandi er sem fyrr Sigurður K. Kolbeinsson en kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.
Áframhaldandi vöxtur í bílaleigu
Fleiri fréttir
Nýjast