Áframhald ekki forsvaranlegt

Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nes­bæ, er annar gestur Þórðar Snæs í Kjarnanum í kvöld. Hann tekur undir með Björt Ólafsdóttur umhverfis-og auðlindaráðherra, sem mætir einng í þáttinn. Björt telur að umræðan um þessa upp­bygg­ingu hafi verið nokkuð föst í fjár­hags­lega anga hennar í von um að hlut­irnir muni lag­ast. „Ef það gerir það ekki þá munu menn láta líðan og heilsu íbú­anna ganga fyr­ir. Það þarf eng­inn að velkj­ast í vafa um það.“

Aðspurður um hvort það sé for­svar­an­legt að halda starf­semi Unites Sil­icon áfram þá segir Kjartan svo ekki vera nema að for­sendur breyt­ist.