Hitatölurnar fyrir norðan- og austanvert landið eru æði fátæklegar fyrstu dagana í júní sem á að heita einn af sumarmánuðunum á Íslandi. Það er rétt að þær skríði upp fyrir frostmarkið og fyrir vikið er ofankoman ennþá í hvítara lagi.
Veðurspáin gerir með öðrum orðum ráð fyrir slyddu á Norður- og Austurlandi næstu nætur enda er hitinn um frostmark þegar deginum sleppir og rétt að hann dóli sér upp í tvær eða þrjár gráður yfir hádaginn. Það er því útlit fyrir að menn verði að taka fram bestu sjógallana um næstu helgi þegar fólkið í landinu fagnar sjómannadeginum.
Veður er allt mun skaplegra um sunnanvert landið þessa fyrstu daga júnímánaðar þar sem búast má við bjartviðri fram í miðja vikuna og 10 til 12 gráðu hita, en hætt er við þungbúnara veðri og rigningu þegar líður nær helgi.
Af vegum er það helst að frétta að allar aðalleiðir á landinu eru greiðfærar þó er krapi á Möðrudalsöræfum og hálkublettir á Oddskarði. Hálendisvegir eru hikns vegar flestir lokaðir vegna hættu á skemmdum bæði á vegum og náttúru.