Áfram í sambandi við viðreisn

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar. mætti í laugardagsþátt Þjóðbrautar í gærmorgun. Ásamt honum voru á pólitíski vaktinni; Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG, og Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra.

Óttarr var inntur eftir hvort komi til greina að Björt framtíð taki þátt í viðræðum um ríkisstjórn, án samflots við Viðreisnar.

Óttarr sér það ekki fyrir sér, segir flokkana eiga það margt sameiginlegt að best fari á að þeir vinni áfram náið saman. Óttarr sér ekki fyrir að sér flokkarnir sameinist.

Óttarr upplýsti að hann hafi mikið talað í símann liðna daga, þannig að allar samræður fari ekki fram á formlegum fundum.

-sme