Ólafur Ólafsson hefur hafið afplánun sína á fjögurra og hálfs árs tukthúsdómi sem hann hlaut nýverið í Hæstarétti. Hann óskaði sjálfur eftir því að hefja afplánunina eins fljótt og auðið væri og er nú kominn vestur á Kvíabryggju eftir tveggja daga veru í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Reiknað er með að allir Kaupþingsmennirnir sem hlutu þunga refsidóma fyrir stórfelld svik í Hæstarétti muni taka úr refsingu sína í þessu sama hegningarhúsi sem rekur sögu sína sex áratugi aftur í tímann. Í fyrstu var það notað fyrir menn sem voru í meðlagsskuld en áratug síðar komu fyrstu refsifangarnir þangað. Þá hafði klefunum á Kvíabryggju verið fjölgað úr 14 í 22, en aðstaða í þessu kunna fangelsi á utanverðu Snæfellsnesi er að öðru leyti góð með t.d. stórum líkamsræktarsal og billjardherbergi í kjallara.
Afplána allir á kvíabryggju
Fleiri fréttir
Nýjast