Þrjú tryggingafélög í Kauphöll Íslands; Sjóvá, Vís og Tryggingamiðstöðin, hyggjast greiða hluthöfum sínum 9,6 milljarða króna í arð. Samanlagður hagnaður þeirra var 5,6 milljarðar á síðasta ári. Teitur Atlason, varaformaður Neytendasamtakanna, segir þetta geta endað með hvelli: „Þetta eru ekkert venjulegar arðgreiðslur, þær eru hærri en hagnaður síðasta árs. Hvað segir það þér. Þeir eru að fara að seilast í bótasjóðina. Manstu hvernig það fór síðast þegar eigendur tryggingafélaganna voru að mixa í bótasjóðunum. Það endaði með hvelli. Ef við stígum ekki á bremsurnar, almenningur í landinu, þá mun þetta bara endurtaka sig. Við erum að horfa upp á þetta aftur og aftur. Við vitum nákvæmlega hvar þessi saga endar. Þetta endar með ósköpum,“ sagði Teitur í viðtali í Morgunútvarpinu.
Áform tryggingafélaga enda með ósköpum
Teitur Atlason, varaformaður Neytendasamtakanna, segir áform tryggingafélaganna að greiða sér út arð eiga eftir að enda með ósköpum. Arðgreiðslurnar séu hærri en hagnaður síðasta árs, að því er haft var eftir honum í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
Fleiri fréttir
Nýjast