Afnám skatts ekki skilað sér í verði

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá 11 verslunum frá því í desember 2014 þar til í lok febrúar. Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Víði, Kaupfélagi Skagfirðinga og 10/11. Á sama tímabili lækkar vörukarfan hjá Nettó. Í þessu verðlagseftirliti ASÍ var sérstaklega skoðað hvernig breytingar á virðisaukaskatti og vörugjöldum hafa komið fram í vöruverði. Telur sambandið að könnunin sýni að ýmsir vöruflokkar, s.s. mjólkurvörur, ostar, egg, brauð og kornvörur hafi almennt hækkað meira en skýrist af breytingum á virðisaukaskatti og vörugjöldum í verslunum, þar sem mikið af þeim vörum í þessum vöruflokkum báru sykurskatt sem nú hefur verið afnumin. Í vöruflokknum sykur, súkkulaði og sælgæti séu aðeins 4 verslanir sem hafi skilað nánast fullum lækkunum - og eru þar taldar upp Bónus, Krónan, Nettó og Kaskó.