Afnám búrvörutolla styrkir bændur

Það er lífshagsmunamál – vital interest -  fyrir Ísland að tengjast þeim fróverslunarsamningum sem eru í farvatninu milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Í því efni er einhliða lækkun eða afnám tolla á búvörum nauðsynlegt innlegg.

Þetta skrifar Einar Benediktsson fyrrverandi sendiherra í nýjum pistli sínum á hringbraut.is, en hann hefur einna yfirgripsmestu reynslu Íslendinga af samningamálum GATT, Efta og ESB. Hann segir að vegna smæðar markaðsins á Íslandi séu tollalækkanir okkar sára lítis virði fyrir aðra. En þversögnin er, að slík  einhliða lækkun/afnám okkar geti haft mikið auglýsingagildi fyrir hagsmuni annarra og yrði þar með plús okkar megin.

Einar útskýrir þetta með þessum orðum: \"Í TTIP-samningunum er viðskiptafrelsi  með landbúnaðarvörur í fyrirrúmi hjá Bandaríkjamönnum og sameiginleg stefna Evrópusambandsins felur að sjálfsögðu í sér frjáls innbyrðis viðskipti með matvæli. Þessa stöðu geta Íslendingar nú gripið sem tækifæri til að taka fyrir  landbúnaðarstefnuna og það framleiðslu- og innflutningskerfi sem henni þjónar við sligandi kostnað og þjónar hvorki hagsmunum  framleiðenda eða neytenda. Breyting þýðir þó ekki að hagsmunir bænda verði bornir fyrir borð, enda óráðlegt að gera tillögur um slíkt með tilliti til  stjórnmálalegrar stöðu bændastéttarinnar. En ekki getur  bændum verið annað ásættanlegt en að atvinnugrein þeirra sé sterk og óstudd enda Bjartur í Sumarhúsum horfinn í nútíma vél- og tölvuvæðingu sveitanna. Sé leitað samanburðar var einmitt slík niðurfelling verndar framkvæmd á Nýja Sjálandi og við tók nýtt skeið góðrar þróunar, svo sem mátti sjá og heyra við heimsókn þangað fyrir nokkrum árum.\"

Einar bendir ´eftirfarandi: \"Á Íslandi komin upp sama staða með landbúnaðinn og var með iðnaðinn við inngönguna  í EFTA á áttunda áratug s.l. aldar. Afnám iðnaðarverndartolla og innflutningshafta hófst og varð bæði samtökum iðnaðarins og viðkomandi stjórnmálaflokkum til ávinnings. Einmitt þetta þarf að verða með landbúnaðinn að aðlögunaráætlun um að verndarsviptingin snerti ekki kjör starfandi bænda. Gætu styrkir til þeirra haldið áfram til að forða teknaskerðingu svo lengi sem þess er þörf. Benda má á að mjólkurframleiðslan á að vera samkeppnisfær vegna fullkominnar staðarverndar . Þá vernd hafa ýmsar aðrar greinar ekki, en þar er við þann tvöfalda þjóðfélagsvanda að glíma, að innflutningsvernd heldur uppi absúrd háu verði en framleiðslan er að auki skattgreiðendum byrði vegna beinna styrkja.\"

Niðurstaða hins aldna sendiherra og samningamanns fyrir hönd Íslands er þessi: \"Afstaða til stuðnings um frelsi í viðskiptum með matvæli yrði til að vinna okkur sterkari pólitíska stöðu í Washington sem snertir fleira en þátttöku í nýja fríverslunarsvæðinu.\"