Fiskafli íslenskra skipa í febrúar var 84.724 tonn. samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands, en athygli vekur að heildaraflinn hefur aukist mikið á milli ára.
Botnfiskafli var rúm 37 þúsund tonn, þar af nam þorskaflinn rúmum 24 þúsund tonnum. Ríflega 4 þúsund tonn veiddust af ufsa og tæp 4 þúsund tonn af ýsu. Afli uppsjávartegunda var 46,5 þúsund tonn í febrúar og skiptist í 36,5 þúsund tonn af loðnu og tæp 10 þúsund tonn af kolmunna.
Á 12 mánaða tímabili frá mars 2017 til febrúar 2018 hefur heildarafli aukist um tæp 276 þúsund tonn eða 28% samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.