Staða sjálfstæðra fjölmiðla á Íslandi er afleit. Rekstrarskilyrðin eru slæm og rekstrarumhverfið litlu skárra. Taprekstur er viðvarandi vandamál og það telst til tíðinda þegar fjölmiðli tekst að skila hagnaði.
Starfsskilyrði blaðamanna eru ekki mikið betri. Starfsöryggið er lítið, álagið er mikið, launin lág og starfsaldur stuttur. Þá hafa rannsóknir gefið til kynna að blaðamennska sé með verstu störfum í heimi þegar litið er til fyrrnefndra þátta og starfsþróunar.
Tímamót urðu í sögu félagsmanna í Blaðamannafélagi Íslands á föstudag þegar blaðamenn, ljósmyndarar og myndatökumenn á stærstu fjölmiðlum landsins réðust í sínar fyrstu verkfallsaðgerðir í tæp 42 ár. Það var jafnframt sögulegt fyrir þær sakir að vefmiðlar lögðust af í fyrsta sinn.
Blaðamenn hafa verið kjarasamningslausir í um tíu mánuði, þó laun þeirra hafi sjaldan verið talin réttlát. Þeir fara fram á leiðréttingu launa sinna, ekki síst vegna launaskerðingar sem þeir tóku á sig í kjölfar efnahagshrunsins, og gera þá eðlilegu kröfu að fá greitt fyrir yfirvinnu sem innt er af hendi.
Kröfur blaðamanna eru eðlilegar og sjálfsagðar. Hins vegar þarf samhliða þessu að líta til þess að aukinn kostnaður, af hvaða tagi sem er, mun ekki bæta rekstrarforsendur fjölmiðla. Frjálsir fjölmiðlar standa höllum fæti gagnvart ríkismiðlinum og þannig verða þeir áfram ef samkeppnisstaðan verður ekki jöfnuð. Ríkisvaldið ætti þess vegna að standa við stóru orðin um stuðning við frjálsa fjölmiðla og liðka þannig fyrir kjaraviðræðunum.
Það er margendurtekin tugga hvernig jafna megi leikinn milli fjölmiðla. Fyrsta skrefið er að ráðast að rót vandans og takmarka yfirburðastöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og þannig draga úr þeirri ójöfnu og ósanngjörnu samkeppni sem ríkir.
Önnur smærri en rökrétt skref eru niðurfelling tryggingagjalds og afnám hins fullkomlega óeðlilega áfengisauglýsingabanns, sem engin leið er að framfylgja, enda er þessar auglýsingar að finna í nánast öllum erlendum fjöl- og samfélagsmiðlum.
Næsta vinnustöðvun blaðamanna verður á föstudag, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Það þarf að grípa inn í áður en afleiðingarnar verða meiri. Þess vegna er kallað eftir því að ráðherra efni loforð sín um breytingar á fjölmiðlamarkaði og í framhaldinu bæti þá skökku samkeppnisstöðu sem ríkið hefur skapað með stuðningi sínum við einn fjölmiðil.
Lykillinn að farsælum rekstri er fólkið sem þar starfar. Styðjum við fólkið, bætum kjör þess, kaup og umhverfi. Það mun óhjákvæmilega leiða af sér sterkari fjölmiðlun.
Birtist fyrst í Fréttablaðinu.