Afleiðingar dóms mde katastrófa

„Þetta kemur mér ekki á óvart. Ég var alveg þeirrar skoð­unar að þetta hefði alveg getað farið svona. Þetta hefði alveg getað gerst með þeim hætti sem síðar gerð­is­t.“

Þetta segir Sig­ríður Rut Júl­í­us­dótt­ir, lög­maður á Rétti, um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða sem féll fyrir rúmum tveimur vikum. Sig­ríður Rut er gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, í frétta- og umræðuþætt­inum 21 á Hring­braut í kvöld. Kjarninn greinir frá.

Brot úr viðtalinu má sjá hér:

Dómur MDE féll þriðju­dag­inn 12. mars síð­ast­lið­inn. Í honum fengu bæði Sig­ríður Á. And­er­sen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, og Alþingi á sig áfell­is­dóm fyrir framkvæmd á skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. Sig­ríður braut stjórn­sýslu­lög með því að breyta list­anum um til­nefnda dóm­ara frá þeim lista sem hæf­is­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­ara af þeim lista en sett aðra fjóra á hann án þess að rann­saka og rök­styðja þá ákvörðun með fullnægjandi hætti. Alþingi var átalið fyrir að hafa kosið um skipan dóm­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern þeirra fyrir sig. Sig­ríður sagði af sér emb­ætti dag­inn eftir dóm­inn og óvissa ríkir um starf­semi Landsréttar vegna dóms­ins.

Sigríður Rut segir að íslensk stjórn­völd hefðu átt að bregð­ast við fyrr í ferl­inu til að koma í veg fyrir að málið end­aði með þessum hætti. „150 pró­sent. Það eru tvær hugs­an­legar nið­ur­stöð­ur. Annað hvort dæmir dóm­stóll­inn Íslandi í óhag, fellir áfell­is­dóm, eins og hann gerði síð­an, eða ekki. Þó að ein­hverjir hafi talið að það væru litlar líkur á því að svo færi sem fór þá samt sem áður eru afleið­ingar þessa dóms kata­st­rófa.“

Hún segir að í öllu ferl­inu, alveg frá því að það var verið að skipa dóm­ar­anna í sum­ar­byrjun 2017, hafi við­vör­un­ar­bjöllur hringt, margir sett út á ferlið og miklar deil­ur átt sér stað. „Þegar á þeirri stundu hefði ráð­herr­ann átt að hugsa: „Heyrðu, ef að illa fer hér þá verður kata­st­rófa. Við skulum gera allt sem við getum gert til að lag­færa ferlið ef það þarf og gera það skot­helt til að katastrófan verði ekki“. Í sein­asta lagi hefði ráð­herr­ann átt, um leið og fyrir lá að dóm­stóll­inn ætlaði að dæma í mál­inu, og málið komið í gegnum allar þessar síur, um leið og þetta liggur fyrir þá átti ráð­herr­ann að skipa starfs­hóp á núll einni. [Fá] okkar helstu og bestu sér­fræð­inga til þess að vera viss um hvað við ætl­uðum að gera dag­inn eftir dóm ef að kata­st­rófan myndi ger­ast.“

Ef hitt hefði ger­st, að málið hefði farið á annan veg, þá hefði verið hægt hefði að henda öllum plönum um aðgerðir vegna kata­st­róf­un­ar. „En kata­st­rófan varð og það var eng­inn með nein plön. Og það er alvar­leg­t.“

Nánar er rætt við Sigríði Rut í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.