Aflaverðmæti jókst um 7% á síðasta ári

Á tólf mánaða tímabili frá maí 2014 til apríl 2015 jókst aflaverðmæti á Íslandi um 7% miðað við sama tímabil árið áður að því er fram kemur í nýjum tölum sem Hagstofa íslands hefur tekið saman.

Verðmæti uppsjávarafla jókst um 26,3% milli tímabilanna, og munar þar mest um loðnu og kolmunna. Einnig jókst verðmæti þorsks um 14,1%.

Ef aðeins er horft til síðasta aprílmánaðar nam aflaverðmæti upp úr sjó um 10 milljörðum króna en það er 8,8% minna en í apríl 2014 að því er fram kemur í þessum tölum Hagstofunnar.

Verðmæti þorsks var mest eða um 3,8 milljarðar króna sem er 7,2% samdráttur miðað við apríl í fyrra.  Verðmæti kolmunna var 35,7% minna en í sama mánuði í fyrra.