Aflandsmenn: veiking krónu glæpurinn

Guðmundur Ólafsson kennari og hagfræðingur hefur sett saman stuttan texta til skýringar á því hver glæpur Sigmundar Davíðs og annarra aflandsmanna sé. Hann undrast að hvorki fréttamenn, stjórnmálamenn né verkalýðsforingja skilji kjarna málsins en þannig hefst færsla Guðmundar:

\"Nú keppast menn við að sverja á sig sakleysi, engin glæpur er framinn, vér greiddum skatta og skyldur. Er það svo?

Enginn efast um að sumir aflandsmenn séu að reyna að sleppa við skatta en í mörgum tilvikum eru þeir fyrst og fremst að losna við verðbólgu. Maður sem leggur in tvo milljarða á inn Tortóla í erlendri mynt á þessa tvo milljarða eftir að verðbólguskotið ríður yfir. Fyrir 2008 kostar dollar 60 kr en eftir það er hann kominn upp í 120 kr. Ef reiknað er í íslenskum krónum á maður sem leggur inn 2 milljarða 4 milljarða eftir að verðbólguskotið hefur geisað,\" skrifar Guðmundur í skýringu sinni á facebook.

Hann heldur áfram dæmi sínu: \"Hverjir borga brúsann? Þegar 1000 til 1500 manns taka út úr hagkerfinu 1000 til 2000 milljarða króna þannig að rosaleg gjaldeyrisþurð myndast í bönkunum þá fellur krónan miklu meir en annars hefði gerst. Hugsanlega hefði dollar einungis hækkað í 80 kr og að verðbólguskotið hefði orðið 10% í stað 40%. Það merkir að kostnaðinum við þessi aflandsrassaköst auðmanna leiddi af sér 40% launalækkun í stað 10% launalækkun. Það er glæpurinn sem þessi lýður stendur frammi fyrir.

Það er eins og enginn stjórnmálamaður eða fréttamaður eða verkalýðsforingi skilji þetta,\" skrifar Guðmundur Ólafsson.

Mikla athygli vakti í síðustu viku þegar glænýr forsætisráðherra landsins taldi ekkert að því í svari við fyrispurn á Alþingi að Íslendingar ættu fé í skattaskjólum, að því gefnu að þeir greiddu einhver gjöld af því.