Kjarninn er með frétt um Panamaskjölin. Kjarninn rifjar upp að þrír fjölmiðlar fengu Pulitzer-verðlaunin fyrir umfjöllun í samtals tíu greinum um Panamaskjölin. Miðlarnir þrír eru Alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna og the McClathy Comapny og Miami Herald.
Greinarnar tíu voru unnar upp úr skjölum sem lekið var af lögmannsstofu í Panama.
Á meðal þeirra var ein grein sem fjallaði um Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fyrrverandi forsætisráðherra og um Sigmund Davíð og aflandsfélagið Wintris sem þau hjón áttu saman.
Sigmundur Davíð sagði af sér sem forsætisráðherra vegna málsins hinn 5.apríl 2016 og náði ekki endurkjöri sem formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlagsson hefur æ síðan sagt að fréttaflutningurinn um hann og Önnu Sigurlaugu og aflandsfélag þeirra hjóna -Wintris - hafi verið samsæri alþjóðlegra fjármálaafla og fjölmiðla til þess að koma Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni frá.
Verðlaunanefndin lofar rannsóknarvinnu þrjú hundruð blaðamanna fyrir að afhjúpa í senn hulda innviði og störf forsvarsmanna skattaskjóla og hlutverks slíkra skattaskjóla. Aflandsfélög í eigu 140 stjórnmálamanna í einum 50 löndum voru afhjúpuð en í hópi þessara stjórnmálamanna eru 14 núverandi og fyrrverandi þjóðarleiðtogar.
Kvennablaðið birtir svo grein sem ber fyrirsögnina \"Fimm samsæri gegn Sigmundi Davíð.\" Þar eru þessi fimm samsæri tilgreind.
Nánar www.kjarninn.is og www.kvennabladid.is