Afkoma er viðunandi á fyrsta ársfjórðungi. Enda er um að ræða einn tekjuhæsta ársfjórðung í sögu Landsvirkjunar. Þar hjálpar hækkun álverðs og aukin sala raforku miðað við fyrsta fjórðung ársins 2016.
Á móti kom gengisþróun en íslenska krónan styrktist talsvert á milli ára og óx því kostnaður Landsvirkjunar mældur í Bandaríkjadölum.
Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði jókst um 16% á milli ára og er með betri ársfjórðungum frá upphafi. Landsvirkjun notar þetta gjarna sem helsta mælikvarða á rekstur fyrirtækisins.
Nettó skuldir hækkuðu um 5,3 milljónir Bandaríkjadala frá áramótum. Hagnaður tímabilsins var 49,4 milljónir Bandaríkjadala. Um þetta er fjallað í frétt frá Landsvirkjun.
rtá