Sjálfstæðisflokkurinn er kominn niður í 16 þingmenn sem er það sama og eftir kosningarnar 2009 í kjölfar hrunsins. Þá fékk flokkurinn einungis 23,7% atkvæða sem er versta útkoma hans í sögunni. Nú fær Sjálfstæðisflokkurinn 25,2% sem er næstversti árangur flokksins frá upphafi.
Við þessar aðstæður hlýtur Bjarni Benediktsson að víkja sem formaður. Hann hlýtur að sjá sóma sinn í því að hætta sjálfur. Annars munu flokksmenn trúlega grípa til sinna ráða.
Verstu kosningaúrslit í sögu Sjálfstæðisflokksins eru sem hér segir:
1. Árið 2009: 23,7%
2. Árið 2017: 25,2%
3. Árið 2013: 26,7%
4. Árið 1987: 27,2%
5. Árið 2016: 29,0%
Bjarni Benediktsson hefur sem formaður leitt Sjálfstæðisflokkinn í fernum kosningum. Útkoma flokksins undir hans forystu er sú lakasta í sögunni, einnig sú næstversta, þriðja lakasta og fimmta versta.
Í kosningunum núna tapaði Sjálfstæðisflokkurinn 5 þingmönnum, fleiri en nokkur annar flokkur.
Þessir þingmenn Sjálfstæðisflokksins náðu ekki endurkjöri: Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, Hildur Sverrisdóttir, Valgerður Gunnarsdóttir, Teitur Björn Einarsson og Vilhjálmur Bjarnason.