Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, ræddi um vanda sauðfjárbænda á Alþingi. Hann nefndi hvort ekki ætti að leita nýrra markaða.
„Ég vil benda ráðherranum á einn risamarkað við dyragættina sem er Evrópusambandið. Er ekki kominn tími til að íslenskir bændur fái að spreyta sig tollfrjálsir í ESB með sínar góðu afurðir í staðinn fyrir að geyma þær í frysti? Er ekki löngu augljóst að ESB kæmi alla vega bændum og landsbyggðinni til góða, ekki bara frjálsir markaðir heldur aðgangur að uppbyggingarsjóðum sambandsins?“
Gunnar Bragi Sveinsson svaraði: „Ég ætla fyrst að svara þessu með ESB. Það sjá nú allir hvers konar ástand er þar, þannig að við erum fljót að afgreiða það allt saman.“
Páll Valur sagðist hafa vitað að ráðherrann væri á móti ESB. „...það er augljóst, en ég skil ekki af hverju íslenskir bændur eiga ekki að fá að hafa tollfrjálsan og tollkvótalausan aðgang að mörkuðum ESB og njóta góðs af því. Ég held að það væri það langbesta sem gæti komið fyrir bændur. Ég veit líka að bændur hafa mikinn áhuga á því. Ég veit að ráðherrann veit líka að þeir hafa áhuga á því, því að þeir hafa verið að falast eftir því að komast inn á þessa markaði.“