Karl Ágúst Úlfsson, þáttastjórnandi á Hringbraut fór á vanalegum kostum sínum í inngangsorðum sínum í þættinum Helginni á laugardagskvöld, en Útvarp Saga var honum þar alveg sérlega hugleikin.
\"Útvarp Saga stóð fyrir skoðanakönnun þar sem spurt var TREYSTI ÞÚ MÚSLIMUM? — Af þeim hlustendum útvarpsstöðvarinnar sem ekki sögðust treysta múslimum,\" sagði Karl Ágúst \"hélt rúmur helmingur að múslimar væru morgunkorn og sögðust ekki treysta neinu sem ekki væri steikt í smjörlíki, en um það bil fjórðungur hélt að verið væri að spyrja út í nýja vörulínu frá Össuri.\"
Og hér fór leikarinn góðkunni á flug: \"Spurningar í næstu skoðanakönnunum Útvarps Sögu eru til dæmis TREYSTIR ÞÚ ÖRVHENTUM?, TREYSTIR ÞÚ FÓLKI FRÁ NESKAUPSSTAÐ? og TREYSTIR ÞÚ RASISTUM?\"
Hann minnti á eftirfarandi: \"Og nokkrir tónlistarmenn hafa mótmælt þeim viðhorfum sem koma fram á Útvarpi Sögu með því að banna stöðinni að flytja tónlist eftir sig. Þar á meðal er Bubbi Morthens. En ef Bubbi hefði nú samið eitt af lögum sínum sérstaklega fyrir Sögu, hvaða lag hefði það þá verið?
EKKI BÖGGA MIG SEGIR RASISTINN
ÞETTA KVÖLD VAR ÉG AÐ MOKA FORDÓMAFLÓRINN
SPURÐU ÞÁ SEM ÞÚ VEIST UM
HVORT ÞEIR TREYSTI ÞESSUM MÚSLIMUM
Og eftir þennan söng sinn minnti Karl Ágúst á að íslenskir þingmenn hafa verið erlendis samtals í 1280 daga það sem af er þessu kjörtímabili og ríkið hefur greitt þeim 30 milljónir í dagpeninga í þessum ferðum þeirra: \"Samkvæmt reglum á þingmaður ekki rétt á dagpeningum ef hann fær frítt að éta á kostnað annarra en skattgreiðenda, en þessum reglum er þó ekki framfylgt. Það er gott að vita að þessar 30 milljónir skuli ekki allar fara í að borga stórhættulegar evrópskar kjötvörur sem valda persónuleikabreytingum,\" sagði leikarinn þegar hér var komið sögu í þættinum - og bætti við: \"Eða kannski er þetta skýringin á því að nú er verið að fella niður tolla á kjöti innfluttu frá Evrópu. Þingmenn eru trúlega orðnir háðir því að éta þessa vafasömu fæðu. Ég spyr nú bara: Veit hann Sigmundur af þessu,\" spurði þáttastjórnandinn hugsi
Svo voru það útlönd, sem stundum eru í fréttum: \"Volkswagenverksmiðjurnar verða að innkalla milljónir díselbíla sem eru með búnað sem blekkir mengunarmæla. Er það virkilega litið svona alvarlegum augum úti í heimi að blekkja almenning? Megum við þá eiga von á því að þingmennirnir okkar verði innkallaðir þegar þeir þiggja ókeypis upphald í útlöndum ofan á dagpeningana sem við borgum þeim,\" spurði Karl Ágúst og brast svo í söng:
ÞINGMAÐUR OG SVARIÐ ER: NEI NEI NEI NEI
ÞINGMAÐUR OG SVARIÐ ER: Hva, við erum ekkert að æsa okkur yfir þessu.
Svo var það Dagur B.: \"Og borgarstjórn Reykjavíkur dró til baka ákvörðun sína um að sniðganga vörur frá Ísrael og ákvað að gefa Björk Vilhelmsdóttur borgarfulltrúa frekar blómvönd í kveðjuskyni. Dagur B. Eggersson hefur játað að tillagan að sniðgöngunni hafi verið illa undirbúin og það hafi verið mistök að samþykkja hana. Og Bubbi söng:
ÞESSI FALLEGI DAGUR
ÞESSI MISTÆKI DAGUR
Í kjölfarið hafa komið fram háværar raddir um að Dagur endurskoði stöðu sína sem borgarstjóri. Enda líka — come on — Dagur B. Egertsson. Þú ættir að vera búinn að vera nógu lengi í pólitík til að átta þig á að íslenskur stjórnmálamaður viðurkennir aldrei mistök. Ef hann gerir það, þá eru það mjög alvarleg afglöp í starfi. Uss.\"
Að lokum þetta: \"Og samkvæmt yfirlýsingu sitjandi biskups þurfa prestar þjóðkirkjunnar ekki að gifta samkynja pör ef það stríðir gegn samvisku þeirra. Nú er beðið eftir svari frá landlæknisembættinu um það hvort læknum og hjúkrunarfólki sé skylt að lækna og hjúkra samkynhneigðum ef það stríði gegn samvisku þeirra. Og spurning í könnun sem þjóðkirkjan ætlar að hleypa af stokkunum í samvinnu við Útvarp Sögu er TREYSTIR ÞÚ SAMVISKU ÞINNI,\" spurði Karl að lokum í inngangi þáttar síns sem hægt er að nálgast í heild sinni eða klippum á hringbraut.is.