Afglæpavæðing vændis samþykkt

Mannréttindasamtökin Amnesty International samþykktu á fundi sínum í Dyflinni í gær umdeilda tillögu um afglæpavæðingu vændis. Íslandsdeild samtakanna sat hjá við afgreiðslu málsins, en lagði til sænsku leiðina sem var hafnað á fundinum. 

Samþykktin merkir að eftirleiðis mun Amnesty International beita sér fyrir því að ríki heimsins aflétti refsingum af iðju vændisfólks, þar sem ekki er um að ræða fórnarlömb mansals, börn eða fórnarlömb annarrar nauðungar.

Hörður Helgi Helgason, formaður Íslandsdeildar Amnesty International, segir í samtali við RÚV í kvöld að íslensku fulltrúarnir hafi fyrir löngu ákveðið að þeir gætu ekki stutt slíka tillögu, en þeir hafi hins vegar ekki mátt greina frá því fyrr en nú: \"Þrítugasta júlí þá tók stjórnin þá ákvörðun að hún myndi ekki styðja þessa tillögu og myndi sitja hjá við afgreiðslu hennar á heimsþinginu,“ segir hann.

Íslendingarnir á fundinum lögðu til sænsku leiðina á fundinum sem gerir kaup og umsýslu á vændi refsiverð, en ekki sjálfa iðju vændisfólksins: \"Íslandsdeildin leitaði eftir samstöðu við aðrar deildir sem voru sömu skoðunar og hún. Sú samstaða náðist og breytingartillagan var flutt, en var hins vegar felld í dag,“ segir Hörður.

Hann segir að nú þegar ákvörðun heimssamtaka Amnesty liggi fyrir muni íslensku fulltrúarnir sætta sig við hana: \"Nú er það svo að þegar maður tekur að sér stjórnarstörf fyrir mannréttindasamtök, þá tekur maður að sér þá skyldu að berjast fyrir því sem samtökin standa fyrir. Við höfum ekkert svigrúm til að hafa persónulegar skoðanir til eða frá á annan veg. Þeim höldum við fyrir okkur, og höldum áfram eins og við getum að vinna að framgangi mannréttinda í gegnum þá stefnu sem samtökin hafa markað sér,“ sagði hann í samtali við RÚV í kvöld.