Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra gagnrýnir tillögu mannréttindasamtakanna Amnesty Internetional um að afglæpavæða vændi að því er fram kemur á Facebook-síðu hans í dag, en tillaga þess efnis er rædd á heimsþingi samtakanna í Dyflinni í dag.
Í færslunni segir hann það hryggilegt að stærstu og virtustu mannréttindasamtök heims leggi fram tillögu um að bæði kaup og sala á vændi verði afglæpavædd á Facebook-síðu sinni.
Tillagan er í meira lagi umdeild. Mörg mannréttindasamtök hafa andmælt henni og sjö íslensk kvennasamtök hafa sent Íslandsdeild Amnesty International yfirlýsingu þar sem þau fara fram á að deildin berjist gegn tillögunni.
Tillagan er í andstöðu við lög í nokkrum löndum, eins og Íslandi, Svíþjóð, Noregi,og Austurríki. Gunnar Bragi segir að á Íslandi hafi sænska leiðin verið valin þar sem refsivert er að kaupa vændi eða hafa milligöngu um vændi en þeim sem selja líkama sinn er ekki refsað.
Gunnar segir vændi ekki vera atvinnugrein og það eigi ekki að þrífast sem slíkt. „Mér finnst hryggilegt til þess að hugsa að á sama tíma og við hvetjum karla um allan heim til að leggja sitt af mörkum til #heforshe og koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum og tryggja kynjajafnrétti þá skulu ein stærstu og virtustu mannréttindasamtök heims leggja þessar tillögur fram,“ segir Gunnar í Facebook-færslunni.