„Lagaákvæðum sem standa eiga vörð um sóma erlendra þjóðhöfðingja hefur sjaldan verið beitt hér á landi og enn sjaldnar fallið dómar á grunni þeirra. Þau fáu tilvik hafa þó síst verið landi og þjóð til sóma. Þannig hlaut rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson dóm fyrir að kalla Adolf Hitler blóðhund og skáldið Steinn Steinarr dóm fyrir að smána hakakrossfána þýska nasistaflokksins. Óhætt er að segja að sagan hafi farið mjúkum höndum um þau afbrot,“ þetta segir meðal annars í greinagerð með frumvarpi sem Steinunn Þóra Árnadóttir flytur á Alþingi.
Frétt um málið ásamt viðtali við Steinunni Þóru verður í Þinghóli í sjónvarpi Hringbrautar í kvöld.
Í frumvarpinu er gert ráð að móðganir við erlenda þjóðhöfðingja sæti ekki opinberum refsingum.