Afgerandi sigur líklegur

Nú stendur yfir seinni umferð þingkosninga í Frakklandi. Nýr flokkur Emmanuel Macron forseta Frakklands er spáð afgerandi sigri í þessum kosningum. Spáð er að flokkur hans fái milli 400 og 470 þingsæti en á þjóðþingi Frakklands eru 577 þingsæti. Flokkur forsetans boðar víðtækar og umfangsmiklar breytingar á vinnulöggjöf Frakklands sem að margra dómi skerðir mikið samkeppnishæfni franskra atvinnuvega. Þá boðar flokkurinn víðtækar aðgerðir í ríkisfjármálum. 

Í fyrri umferð kosninganna fyrir viku fékk flokkur Emmanuel Macron forseta 32,2% atkvæða en kosningaþáttaka var þá fremur dræm en aðeins 51,3% kjósenda á kjörskrá kaus þá. Spáð er að Þjóðveldisflokkurinn verði helsti flokkurinn á þingi í stjórnarandstöðu og að hann fái á milli 80 og 132 þingsæti. Þessi flokkur fékk 21,5% atkvæða í fyrri umferð koninganna sl. sunnudag. Flokkur Emmanuel Macron verður að fá hið minnsta 289 þingsæti til að hafa tilskilinn þingmeirihluta. Sú þversögn blasir við að verði kosningaþátttaka nú jafn dræm og sl. sunnudag er það ávinningur fyrir flokk Emmanuel Macron. 

Stjórnmálaskýrendur telja sig greina uppgjöf í röðum oddvita þeirra flokka sem etja kappi við flokk forsetans Emmanuel Macron. Þessir oddvitar að því er virðist telja afgerandi sigur flokks Macron svo öruggan að það sé nánast tilgangslaust að heyja öflugu kosningabaráttu. Þessa skýringu ber ekki að taka alvarlega. Flokkur Emmanuel Macron höfðar einfaldlega til kjósenda með umbótastefnuskrá sinni og skýrum markmiðum og með boðun róttækra breytinga.        

rtá