Áfengt coca cola á leið í verslanir

Coca-Cola ætlar að setja áfengan gosdrykk á markað í fyrsta skipti í 125 ára sögu fyrirtækisins. Áfengisgosdrykkurinn (gosfengið?) verður markaðssettur í tilraunaskyni í Japan á næstunni, að því er haft er eftir einum stjórnenda fyrirtækisins þar. Coca-Cola í Japan ætlar að færa sér í nyt vaxandi eftirspurn eftir svonefndum Chu-Hi drykkjum, sem eru gosdrykkir, þar sem brennda drykknum shochu er blandað í.

Áfengismagnið í þessu áfenga gosi er gjarnan 3% til 8%.

Jorge Garduno, forstjóri Coca-Cola í Japan segir ólíklegt að drykkurinn verði seldur utan Japan.