Áfengi versti vímugjafinn

 

 

Andrés Magnússon geðlæknir segir að áfengi sé langsamlega skaðlegasta vímuefni sem til er, þegar litið heildstætt á málin.

Þegar komi að ofbeldi, dauðsföllum, vinnutapi og félagslegum skaða sé ekkert vímefni sem komist nálægt áfengi í skaðsemi. Þá sé ótalið allur sá fjöldi barna sem hafi skaðast af áfengisneyslu móður á meðgöngu, sem sé viðkvæmt mál sem lítið sé rætt um á Íslandi. Andrés var gestur á Þjóðbraut í gærkvöldi, fimmtudaginn 16.mars.