Samkvæmt nýrri rannsókn Eurostat á áfengisverði innan Evrópusambandsins og EFTA ríkjanna kemur í ljós að íslenskir neytendur borga langmest fyrir áfengi. Langstærstur hluti áfengisverðs á Íslandi eru skattar og gjöld, en verðið á áfengi hér á Íslandi er nær tvöfalt hærra en meðalverð í Evrópu. Sem dæmi má nefna að áfengisverð er meira en helmingi lægra í Danmörku og þrisvar sinnum ódýrara í Þýskalandi. Noregur er með næstdýrasta áfengið. Ódýrasta áfengið í Evrópu má finna í Bosníu og Norður-Makedóníu.
Í nýju fjárlagafrumvarpi fjármálaráðherra er áætlað að áfengisverð muni enn hækka í verði, því um áramótin munu áfengisskattar hækka um 2,5 prósent.