Afdrifaríkt ferðalag til tælands

Páll Thamrong Snorrason fór í afdrifaríka ferð til Tælands í fyrrahaust. Vífill Karlsson hagfræðingur sýnir fram á að sveitarfélög tapa á ferðaþjónustu. Nýr forstjóri Hörpu hefur mikið verk að vinna og ný ljósmyndabók um Ísland er komin út.

Þetta er í þættingum Ferðalagið í kvöld sem er á dagskrá á milli 20 og 21. 

Páll er ungur maður á þrítugsaldri sem fór í ferð til Tælands í fyrrahaust. Slík ferð hefur dýpri meiningu fyrir Pál en aðra en í henni fann hann munaðarleysingjahælið sem hann bjó á til fjögurra ára aldurs eða þar til hann var ættleiddur til Íslands. Linda hitti hann á Örnu kaffihúsi en Páll sem vill heimsækja meira af landinu, lenti þó í heldur óhugnanlegri reynslu á ferðalagi sínu núna í september þegar hann var á risastóru strandarpartíi.

Vífill Karlsson hagfræðingur hjá SSV Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og dósent við háskólann á Akureyri mætir til Lindu og Sigmundar Ernis. Hann hefur tekið saman áhrif ferðaþjónustunnar á tekjur og kostnað sveitarfélaganna.

Kristján Ingi Einarsson ljósmyndari spjallar við Sigmund um ICELAND UNIQUE ISLAND, nýja ljósmyndabók þar sem hann fer víða um land og fangar bæði fólk og náttúru.

Nýr forstjóri Hörpu er Svanhildur Konráðsdóttir – Linda settis niður með Svanhildi inní Hörpu nánar tiltekið í tröppuganginn ofan við Eldborgarinnganginn. Þær ræddi meðal annars um hvað þyrfti að gera öðruvísi í húsinu gagnvart erlendum ferðamönnum.