Greiðsluþátttaka ríkisins vegna notkunar lyfs gegn HIV hefur verið samþykkt af lyfjagreiðslunefnd. Um er að ræða svokallaða PrEP meðferð og nefnist lyfið Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Krka og segir sóttvarnarlæknir þetta áfangasigur í baráttunni við HIV veiruna, líkt og kemur fram á vef Landlæknis. Lyfið virkar sem fyrirbyggjandi meðferð gegn HIV.
Lyfjagreiðslunefnd ákvað leyfið í lok júní og setti sem skilyrði fyrir leyfisveitingunni að einungis læknar LSH með sérfræðiviðurkenningu í smitsjúkdómum myndu ávísa lyfinu og að meðferðin yrði veitt samkvæmt klínískum leiðbeiningum smitsjúkdómadeildar LSH .
Leyfisskylda lyfjagreiðslunefndar er til eins árs og verður endurmetin m.t.t. kostnaðar og fjölda einstaklinga sem fá meðferð með lyfinu. Þeir sem fá því ávísað munu þá vera undir eftirliti í nokkra mánuði.