Í allri þessari umræðu um Grikkland þessa dagana gleymist kjarni máls. Hann er sá að vandi Grikkja snýst ekki um gjaldmiðla eða veru í ESB. Vandi þeirra felst í stjórnleysi heima fyrir.
Svona skrifar samfélagsrýnirinn Ólafur Jón Sívertsen á hringbraut,is, alkunnur íslenskri stjórnsýslu og utanríkismálum, en hann metur það svo að samúðin með Grikkjum sé á köflum aumingjadýrkun: \"Grikkir eru gjörspillt þjóð,\" skrifar hann \"sem kann ekki fótum sínum forráð. Þeir tóku óhóflega mikið af lánum á sínum tíma og notuðu peningana ekki til uppbyggingar í samfélaginu heldur í eyðslu og rugl. Þeir verða sjálfir að bera ábyrgð á misgjörðum sínum og þeim á ekki að líðast að senda reikninginn af sukki, spillingu og stjórnleysi undanfarinna ára til Evrópusambandsins eða alþjóðasamfélagsins. Þeir verða að borga brúsann sjálfir og taka út sínar þjáningar,\" skrifar Ólafur Jón sem sjálfur þekkir mjög til gríska samfélagsins .
Og hann skrifar áfra,: \"Þeir einu sam verðskulda að þjást með þeim eru þeir lánardrottnar sem voru svo grunnhyggnir að lána þeim á sínum tíma. Þeir komast ekki hjá því að afskrifa hluta af kröfum sínum og þeir verða hreinlega að horfast í augu við það. Geta sagt: Gengur bara betur næst. Aðrir eiga ekki að þurfa að taka þátt í að borga afleiðingarnar af eyðslufylliríi og rugli Grikkja.\"
Ólafur Jón er í sístækkandi hópi þeirra sem benda á Grikki og segja þeim að hætta að benda á aðra: \"Loks er mikilvægt að átta sig á þeirri staðreynd að núverandi leiðtogi Grikkja, Tsipras, er marxisti sem vill koma Grikkjum út úr ESB og evrunni, taka upp drökmu, gömlu handónýtu myntina, þannig að hann geti prentað seðla og fellt gengi eigin myntar eins og skammtímahagsmunum hans hentar.\"
Innanbúðarmaðurinn er ekki að skafa utan af skoðunum sínum: \"Tsipras er hættulegur og spilltur stjórnmálamaður sem hikar ekki við að blekkja þjóð sína með hálfsannleik og rangtúlkunum. Hann hugsar einingis um eigin frama og honum er nokk sama um þjóðina. Menn af þessu tagi stinga upp kollinum öðru hvoru eins og Hitler, Stalín Pol Pot – já, og það væri einnig hægt að nefna nýleg dæmi frá Íslandi. En best að sleppa því!\"