Margrét Sanders formaður Samtaka verslunar og þjónustu segir krónutöluviðmið í kjarasamningum vera út í hótt. Ef menn vilji leika sér að slíkum tölum sé allt eins gáfulegt að nefna milljón. Talan skili ekki betri kjörum heldur raunverulegur kaupmáttur. Þetta kom fram í máli hennar í viðskiptaþættinum Hringtorgi á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld þar sem hún og Andrés Magnússon framkvæmdastjóri SVÞ voru gestir Huldu Bjarnadóttur.
Margrét, sem situr einnig í framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins, sagðist fyrst og fremst vilja horfa til þess sem sannarlega skili láglauna- og millitekjuhópum mestum ábata. Hún nefndi þar 5 atriði í þættinum: Hækkun persónuafsláttar skili miklum árangri fyrir þessa stóru hópa fólks, lagfæra beri launakerfið svo hlutfall grunnlauna sé veigameira en skerfur yfirvinnu, álags og fastra bónusa, fella beri niður tolla af fatnaði og skóm og setja þá í lægra vaskþrep, leiðrétta þurfi og lækka tolla af landbúnaðarvörum og nýta í staðinn þau tækifæri sem skapist hafi með auknum útflutningi íslensks sveitavarnings - og síðast en ekki síst þurfi að fara í saumana á húsnæðismálum í því augnamiði að lækka húsaleigu og laga greiðslumat að veruleika venjulegs fólks.
Af þessum orðum formannsins má ráða að SVÞ horfi mjög til ríkisvaldsins þegar kemur að gerð næstu kjarasamninga, en þar á bæ hafa menn raunar sagst styðja 300 þúsund króna lágmarkslausn, nú síðast Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar sem lét þau orð falla á Þjóðbraut Páls Magnússnar í síðustu viku.
Hægt er að nálgast klippur úr þættinum hér neðar á forsíðunni á hringbraut.is og þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum.