Uppsögn Kaupfélags Skagfirðinga á Hólmfríði Sveinsdóttur hjá nýsköpunarfyrirtækjunum Iceprotein og Protis, hefur vakið óánægju og grunsemdir um hvata kaupfélagsstjórans. Þetta segir í inngangi ítarlegrar úttektar í Stundinni sem kom út á föstudaginn og ber heitið: „Það sem ekki er sagt í Skagafirði.“ Blaðamaður Stundarinnar gerir þar tilraun til að varpa ljósi á af hverju kona, sem hafði gengið vel í sínum rekstri og verið nokkuð áberandi í fjölmiðlum var skyndilega rekin.
Í grein Stundarinnar segir að Þórólfur Gíslason, forstjóri Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki, hafi glímt við háværar óánægjuraddir heima fyrir út af brottrekstri Hólmfríðar í febrúar en hún hafði fengið mikið hrós fyrir frammistöðu sína. Skýringarnar voru þær að reksturinn undir stjórn Hólmfríðar hefði gengið illa, það stenst hins vegar ekki skoðun.
Samkvæmt heimildarmönnum Stundarinnar er skýringin helst sú að Þórólfi hafi þótt hún vera of áberandi í fjölmiðlum. Í grein Stundarinnar segir:
„Eitt dæmi um þetta er innslag og sjónvarpsfrétt sem Kristján Már Unnarsson gerði á Stöð 2 í apríl í fyrra þar sem fjallað var um starfsemi Iceprotein og Protis og starfsemin beintengd við móðurfélagið FISK Seafood sem réttilega var sagt vera „eitt stærsta útgerðarfélag“ landsins. Einn heimildarmannanna segir að Þórólfi muni hafa fundist Hólmfríður einfaldlega fljúga of hátt; að hún hafi tekið of mikið til sín af athyglinni sem FISK Seafood fékk og að félagið væri fyrst og síðast útgerðarfélag en ekki nýsköpunarfyrirtæki.“