Ole Anton Bieltvedt alþjóðlegur kaupsýslumaður skrifar út frá tilvitnun hugsuðarins Albert Einstein um vitfirru. Tilvitnun Alberts er svona: \"Ef þú gerir sama hlutinn aftur og aftur og reiknar með breytilegri niðurstöðu þá er það vitfirra.\" Ole Anton telur tilvitnun Alberts eiga við um peningastefnu stjórnvalda og stefnu þeirra í gjaldmiðilsmálum á Ísland en hér hefur gegi krónunnar fallið 40 sinnum frá árinu 1950. Því sé eins og stjórnendur gjaldmiðils- og peningamála á Íslandi hafi ekkert lært. Þeir gera það sama aftur og aftur í gjaldmiðilsmálum. Þeir halda krónunni úti með sama hætti. En virðast reikna með nýrri og betri útkomu í hver tilraun skrifar Ole Anton.
Ole Anton vísar máli sínu til stuðnings í aðra tilvitnun Alberts Einstein: \"Þú getur aldrei leyst vandamál með sömu hugsun og vandmálinu olli.\" Þessi sannindi hafa greinilega ekki náð til stjórnenda gjaldmiðilsmála á Íslandi. Ole Anton segir að þessir sömu stjórnendur gangi glaðbeittir fram á fundum og fullyrði að krónan hafi bjargað Íslandi í hruninu árið 2008. Sannleikurinn er auðvitað það andstæða segir Ole Anton. Það var krónan sem kom Íslendingum í hrunið árið 2008. Hvernig geta Íslendingar haldið úti stöðugum og traustum gjaldmiðli með lágmarksvöxtum þegar að meira að segja Þjóðverjar með sitt ofursterka D-Mark ákváðu að styrkja sitt hagkerfi enn betur með upptöku evru?
Allar smáþjóðir ESB Evrópu hafa tekið upp evruna. Þær eru fjórtán talsins og þær skilja að á þessum tímum samþjöppunar heimsins og alþjóðlegra fjármálakerfa verða þeir sem skyldir eru og hafa svipuð eða sömu lífsviðhorf og menningu að standa saman með sameiginlega hagsmuni og öryggi fyrir augum. Ole Anton segir að í raun og veru er gjaldmiðill verkfæri eða tæki sem ekkert hefur með þjóðerni að gera og því geta menn gleymt öllum þjóðernistilfinningum og þjóðarmetnaði hér. Grein Ole Anton er í Fréttablaðinu í dag.
rtá
Nánar www.frettabladid.is