Nakt valdið breytti lífsýninni

Ragnar Aðalsteinsson gjörbreytti afstöðu sinni til stjórnmála þegar hann sá hvernig nöktu valdi var beitt gegn mótmælendum, en hannn ferðaðist um heiminn og ílengdist á Spáni á tímum einræðisherrans Franco áður en hann lagði lögfræði fyrir sig hér heima.
 
Ragnar er sjö barna faðir, faðir tveggja unglinga, sem berst fyrir félagslegu réttlæti og mannréttindum.
Eftir 56 ára feril segir hann pólitík ráða för innan dómstólanna, Hæstiréttur hafi beygt sig fyrir löggjafarvaldinu og brugðist skyldu sinni. Því sé óumflýjanlegt að taka upp nýja stjórnarskrá, en meirihluti Alþingis hunsi vilja fólksins og gæti frekar hagsmuna hinna efnameiri, þeirra sem hafa völdin í þjóðfélaginu.