Af eyju kóróna-veirunnar

Dagur 172 - Af eyju Kóróna-veirunnar.

Um daginn greindist þýsk fjölskylda með Kóróna-veiruna á eynni La Gomera vestur af Tenerife. Þetta væri vart í frásögur færandi nema fyrir þá sök að þessi afskekkta eyja er vinsæll viðkomustaður fyrir túrista á Tenerife sem og íbúa í Paradís.

Sjálf hafði ég nýlega keypt ferð fyrir fimm persónur þar á meðal sjálfa mig til La Gomera og nú var úr vöndu að ráða. Áttum við að hætta við og kasta 285 evrum á glæ eða treysta á að við slyppum undan veirunni illræmdu. Við ákváðum að taka áhættuna og mættum fjögur á staðinn þar sem við biðum rútunnar sem fór með okkur til ferjuhafnarinnar og um borð í Akraborgina. Fimmta manneskjan var þegar komin með Kóróna-veiruna eða svo kölluðum við veikindin hennar og töpuðum fyrir bragðið einungis 57 evrum en það var verðið á hverja persónu í ferðinni.

Ferðin okkar til La Gomera var nánast fullkomin. Veðrið var eins og best var á kosið, ekki sást ský á himni allan daginn og José Angels leiðsögumaður lék við hvern sinn fingur og reytti af sér brandarana í því sem kalla má einleik frábærs sögumanns í heilan dag. Inga fékk loksins að sjá þetta glæsimenni sem José sannarlega er eftir vel ýktar frægðarsögur mínar af honum, en Halldór og Hannes voru dálítið hugsandi yfir tilburðum José til að byrja með, en það gleymdist fljótt og ferðin varð eins og fullkomin leikhúsferð.

\"\"

Að aflokinni ferðinni var full ástæða fyrir suma að skála í Corona bjór sem talinn er vera óbrigðult ráð gegn Kóróna-veirunni auk þess sem ég á núna fulla flösku af bananalíkjör framleiddum á La Gomera.

Af Kóróna-veirunni hefi ég minni áhyggjur. Heilsan er góð og ég vona að ég verði í hópi þeirra 98% væntanlega smitaðra sem munu lifa af.

Ef ekki, finn ég mér eitthvað annað að gera í framtíðinni í sumarlandinu.