Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, og Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, tókust á um búvörusamninginn í Þjóðbraut á Hringbraut í morgun.
Alþingi lauk ekki við samninginn áður en það fór í frí. Til stendur að Alþingi klári samninginn í ágúst, það er þegar þingið kemur saman á ný.
Viðtalið við þá Sigurð og Frosta verður að finna á hrinbraut.is á morgun.