Ævintýralegur bissnesferill orra vigfús

Honum var strítt á því þegar hann freistaði þess að flytja inn fyrstu Toyota-bílana frá Japan á sínum tíma að enginn Íslendingur myndi líta við svona litlum bílum, enda væri þeir greinilega sniðnir fyrir dverga.

Annað kom á daginn, eins og vel kemur fram í viðburðaríku samtali Orra Vigfússonar og Sigmundar Ernis Rúnarssonar í Mannamáli í kvöld, en þar rekur þessi eitilharði Siglfirðingur sögu sína allt frá því hann upplifði síldarvævintýrið á bernsku- og unglingsárum sínum norður í landi þar til hann fylgdist með uppgangi Bítlanna á námsárum sínum í Bretlandi - og síðar í alls konar athafnasemi heima á Íslandi þar sem hann hefur verið iðinn við kolann í alls konar verkefnum tengdum iðnaði, verslun, fjármálum og ferðaþjónustu.

Á síðustu árum er hann hvað kunnastur fyrir verndarstarf sitt í þágu villta laxastofnsins í Atlantshafi, en hann segir opið fiskeldi í sjókvíum vera tímasprengju hér við land, rétt eins og dæmin sanni frá öðrum löndum við norðanvert úthafið, svo sem í Noregi þar sem stór hluti villta laxastofnsins er svo mengaður af erfðaefnum að hann mun vart eða ekki bíða þess bætur.

Orri óttast að það sama muni gerast hér á landi með óafturkræfum afleiðingum fyrir fiskinn í sjónum, svo og fjörur landsins, þar á meðal helstu æðarvörpin, en mengunin frá opnu sjókvíaeldi sé langtum meiri en menn hafi viljað láta uppi til þessa.

Hann kveðst þó alls ekki vera á móti fiskeldi, þvert á móti eigi Íslendingar að leiða ábyrgt eldi, en það verði ekki gert nema annaðtveggja með lokuðum kvíum í sjó og landeldi.

Mannamál eru á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 20:30.