„Þessi atburðarás einkenndist af ævintýralegum undirmálum og óheilindum af hálfu þeirra sem réðu ferðinni. En það flýgur hver eins og hann er fiðraður,“ segir Páll Magnússon fyrrverandi útvarpsstjóri í forsíðuviðtali í nýjasta hefti tímaritsins MAN, en Páll brýtur raunar blað í sögu þess sen fyrsti karlmaðurinn sem birtist á forsíðu þess.
Viðtalið ber yfirskriftina Uppgjör Páls og þar gerir hann upp starfslokin á RÚV sem hann segist hafa kosið að hefðu borið að með öðrum hætti en raun varð á. Hann ræðir líka aðrar uppsagnir á RÚV, svo sem þegar allir framkvæmdastjórar voru látnir fjúka í einu lagi að hálfu nýrra valdhafa í Efstaleiti: "„Sú ákvörðun var ótrúlega kveifarleg að hálfu þeirra sem hana tóku. Það ber vott um mikinn skort á sjálfstrausti að treysta sér ekki til að vinna með öðru fólki en maður hefur sjálfur valið sér.“