Tryggvi Haraldsson pistlahöfundur hér á hringbraut.is segist þeirrar skoðunar að Ísland eigi að sleppa öllum olíudraumum. Það sé sterkasta umhverfisyfirlýsing sem hægt sé að senda alþjóðasamfélaginu og vera þannig fyrirmynd annarra þjóða frekar en sérhagsmunasamfélag sem sé tilbúið að fórna hreinni náttúru og fiskimiðunum fyrir fjármuni.
Tryggvi skrifar pistil sinn eftir að hafa hlýtt á tveggja manna tal á Bylgjunni - væntanlega í kjölfar umfjöllunar um olíuleit á Drekasvæðinu í Heimsljósi í síðustu viku hér á Hringbraut. Þar lýsti annar viðmælenda blákalt þeirri skoðun sinni að það héti „popúlismi“ að vera á móti hugsanlegum olíuuppgreftri Íslendinga í kringum landið.
Tryggvi segir það algert virðingarleysi við skoðanir nýrrar kynslóðar sem ekki vill bora eftir brátt úreltum orkugjafa og eyðileggja þannig ímynd Íslands í orkumálum. Auðlindir á borð við hreina náttúru og gjöful fiskimið eigi enga samleið með olíu. Í framtíðinni verði ekkert dýrmætara en orðspor og ímynd landsins. Það sé það besta sem við getum gefið börnum og barnabörnum okkar.
Í lokin segir Tryggvi: „Þeir sem horfðu á Dallas vita að olíuuppgröftur getur haft varanlegar afleiðingar á fjölskyldur og það er mín skoðun að fátt sé jafn mikið „has been“ og að vilja grafa upp olíu á árinu 2015.“