Ættingjar arngríms biðja um tillitssemi

Ættingjar Arngríms Jóhannssonar, sem hlaut alvarleg brunasár þegar flugvél hans brotlenti í Barkárdal á Tröllaskaga í gær, sendu síðdegis í gær frá sér yfirlýsingu þar sem þeir biðja um að Arngrími sé sýnd tillitssemi á þessum erfiða tíma og að hann fái það næði sem nauðsynlegt er til að hann nái bata.
 

Fram kemur í yfirlýsingunni að fjölmiðlar hafi verið nokkuð ágengir um nýjar upplýsingar um líðan Arngríms: \"Við biðjum þá um að sýna okkur tillitsemi á þessum erfiða tíma og að Arngrími sé veitt það næði sem nauðsynlegt er til að hann nái bata,“ segir þar.

Fjölskyldan vill einnig koma á framfæri kæru þakklæti til lögreglu, Landhelgisgæslunnar og fjölmennu liði björgunarsveitanna sem komu að leit og björgun í gær. Arngrími sé nú á gjörgæsludeild Landspítala - liðan hans sé stöðug eftir atvikum, en hann hafi hlotið alvarleg brunasár. Hann kom sér sjálfur út úr vélinni og var með meðvitund þegar hjálp barst sex tímum síðar.

Yfirlýsinguna í heild má lesa hér:

Við viljum koma á framfæri kæru þakklæti til lögreglu, Landhelgisgæslunnar og þeirra fjölmörgu björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem komu að leit og björgun Arngríms. Hann dvelur nú á gjörgæsludeild Landspítala. Líðan hans er stöðug eftir atvikum en hann hlaut alvarlega brunaáverka. 
Fjölmiðlar hafa verið nokkuð ágengir um nýjar upplýsingar um líðan Arngríms. Við biðjum þá um að sýna okkur tillitsemi á þessum erfiða tíma og að Arngrími sé veitt það næði sem nauðsynlegt er til að hann nái bata. 
Að lokum viljum við koma á framfæri kæru þakklæti fyrir þá góðu ummönnun sem hann hefur fengið á Landspítala og allar hlýjar kveðjur frá bæði vinum og ættingjum.

Einn maður lést í flugslysinu, kanadískur farþegi í vélinni.