Ætti að skrúfa fyrir þessi lögbrot

Þorsteinn Pálsson segir málþóf stjórnarandstöðunnar undir liðnum fundarstjórn forseta beinlínis brot á þingskapalögum.  Ekki sé rétt að nota heimild til að gera athugasemd við stjórn forsetans til þess að ræða önnur efni eins og þau hvað mönnum finnst um mál ríkisstjórnarinnar, og að í raun ætti þingforseti að skrúfa fyrir þessi lögbrot.  Þetta kemur fram í nýjasta pistli Þorsteins hér á hringbraut.is.


Umræður um fundarstjórn forseta hafa nú vikum saman staðið um fundarstjórn forseta Alþingis, og hefur ekkert eitt efni verið rætt jafn oft á Alþingi að undanförnu.  Um það segir Þorsteinn:


„Ef þessar umræður spyrðust út fyrir landsteinana myndu útlendingar sem ekki þekkja til íslenskrar umræðuhefðar tæpast geta ætlað annað en forseti Alþingis Íslendinga væri harðsvíraðasti málfrelsiskúgari norðan Alpafjalla að minnsta kosti.


Í öllum þessum fréttaflutningi af athugasemdum við fundarstjórn forseta Alþingis hefur hins vegar ekki í eitt einasta skipti verið frá því greint að forseta hafi skjöplast svo í stjórn sinni á löggjafarsamkomunni að tilefni hafi verið til að fetta fingur út í störf hans. Samt tala þingmenn sig hása um fundarstjórn hans.


Hvað ætli þeir erlendir menn sem kunna að hafa heyrt um þessar þrotlausu athugasemdir við fundarstjórn forseta haldi um andlegt ástand þjóðarinnar ef þeim yrði sagt að stjórnarandstaðan ætti í raun og veru ekkert sökótt við þingforsetann?"


Þó málþóf sé þekkt í flestöllum þjóðþingum segir Þorsteinn að hvergi sé það eins og hérlendis.  Núverandi stjórnarflokkar geti illa kvartað undan því, því þeir beittu því óspart í stjórnarandstöðu sinni á síðasta kjörtímabili.  Þorsteinn segir að ekki sé hægt að hallmæla stjórnarandstöðunnu fyrir málþóf innan þeirra marka sem þingsköp leyfa en að sú misbeiting þingskapa að gera athugasemdir við stjórn forseta á þinginu þegar tilefnið er málefnaleg deila við ríkisstjórnina eigi ekki að líðast.