Til stóð að vísa tveimur drengjum sem eru níu og tíu ára úr landi ásamt föður þeirra sem heitir Asadollah. á Facebook-síðu samtakanna No Borders Iceland, sem berjast fyrir hagsmunum hælisleitenda hér á landi kemur fram að Asadollah og synir hans hafi leitað á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins í gærkvöldi. Á síðu samtakanna segir:
„Annar sonurinn er í annarlegu ástandi og að brotna niður vegna aðstæðna. Hinn sonurinn situr með hendur í skauti sér á biðstofunni. Þetta þarf að stöðva strax. Börn eiga rétt á öryggi óháð uppruna! Bestu hagsmunir drengjanna tveggja eru að vera áfram á Íslandi.“
Um klukkan hálf tvö í nótt greindu samtökin frá því að brottvísun hefði verið frestað tímabundið eftir að geðlæknir á bráðamóttökubarna sagði stoðdeildarlögreglumanni að ekki væri mögulegt að brottvísa barni sem væri svo alvarlega þjakað af kvíða. Á síðu samtakanna segir:
„Auðvitað þurfti að bíða þar til geðlæknir staðfestir að 10 ára barn sé komið í taugaáfall áður en útlendingayfirvöld hlusta. Og þó hefur engu verið breytt, einungis frestað. Ekki hefur verið sagt til um hvenær brottvísunin fer fram, en líklega verður það seinna í vikunni.“ Þá segir enn fremur:
„Sálrænn stuðningur fyrir börn á flótta er ábótavant hér á landi, en yfirvofandi brottvísun er óvissa sem ekkert barn ætti að þurfa að eiga yfir höfði sér.“